News
Geysir, HS Orka and Nordural Organize 11 Hiking Tours around Reykjanes - Geysir, HS Orka og Norðurál standa fyrir 11 gönguferðum á Reykjanesi í sumar
Árið 2008 stóðu Hitaveita Suðurnesja hf og Geysir Green Energy, í samvinnu við Víkurfréttir, SBK, Björgunarsveitina Suðurnes og Rannveigu Garðarsdóttur leiðsögumann, fyrir 13 gönguferðum víðsvegar um Reykjanesskagann með ótrúlega góðri þátttöku vaskra göngugarpa. Mikill áhugi er fyrir áframhaldandi samvinnu en vegna breyttra forsenda nú til slíkra verkefna er Norðurál fengið með í verkefnið.
Reykjanesskagi er kjörlendi göngufólks og þar geta allir fundið gönguferðir við sitt hæfi. Náttúran er mögnuð, láglendi mikið, virkar gosdyngjur með allri sinni litadýrð, þar er hægt að ganga í gegnum aldir á jarðfræðilegan mælikvarða. Mjög áhugavert er að ganga gamlar þjóðleiðir þar sem klappað er í hraunið eftir hófa og fætur liðinna alda, landnámssagan er eftirtektarverð og breyting á búsetu á Reykjanesskaga er einnig merkileg.
11 gönguferðir á dagskrá í sumar
Nú liggur fyrir metnaðarfull göngudagskrá og verða 11 gönguferðir á dagskrá fyrir sumarið 2009. Þar eru göngur við allra hæfi, léttar innanbæjar göngur í bland við fjallgöngur. Í leiðalýsingu fyrir gönguferðirnar er tilgreint hvað gangan taki langan tíma, erfiðleikastig, hvort göngu ljúki á sama stað og hún hófst á og hvort farið sé á áfangastað með rútu. Áætlaður tími gerir ekki ráð fyrir ferðatíma til og frá göngustað sem getur verið breytilegur. Í hverri göngu er tekinn nestispása þar sem sagt frá ýmsum fróðleik um nánasta umhverfi.
Leiðsögn og brottfarartími
Er í höndum Rannveigar Garðarsdóttur leiðsögumanns. Vert er að benda göngufólki á að allir eru á eigin ábyrgð og þurfa að huga að eigin öryggi.
Göngurnar hefjast kl. 19:00 við SBK Grófinni 2 - 4. Kostnaður við rútuferð er kr. 1.000 pr. mann. Göngufólk getur einnig komið sér sjálft til og frá göngustað. Hægt er að nálgast upplýsingar um göngurnar á eftirfarandi heimasíðum: www.hs.is og www.leidsogumenn.is. Jafnframt er hægt að sjá fréttir og myndir af fyrri ferðum á vef Víkurfrétta www.vf.is.
Hvað þarf meðferðis?
- góðir gönguskór / göngustafir
- léttan bakpoka
- viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri
- létt nesti (samloku, ávexti, kex)
- drykkjarföng
- góða skapið
Erfiðleikastig
* Stutt ganga, ekki mikið upp í móti
** Lengri ganga, ekki mikið upp í móti
*** Fjallganga, lengri ganga og upp í móti
Göngurnar eru ýmist frá A til B eða enda á upphafsstað.
Rúta er frá SBK á göngustað þegar við á. Kostnaður við rútuferð er kr. 1.000. Göngufólk getur einnig komið sér sjálft til og frá göngustað.
20. maí. Innri Njarðvík - Grímshóll - Hólmabúðir
Gengið frá Innri Njarðvík með ströndinni upp á Grímshól,hæsta punkt á Stapanum. Þaðan verður gengið að Hólmabúðum undir Stapanum og gengið þaðan inn í Voga.
Gangan tekur 2 – 3 klst. ** og rúta. Gengið frá A til B.
SKÓR: Strigaskór / gönguskór
27. maí. Innanbæjar ganga í Reykjanesbæ
Gengið verður um gamla bæinn í Keflavík upp í heiði að Rósaselsvötnum. Þaðan verður gengið fyrir ofan byggðina út í Ytri Njarðvík, sagt verður frá athyglisverðum stöðum og skemmtilegu fólki.
Gangan tekur 2 – 3 klst. * . Ganga endar á upphafsstað.
SKÓR: Strigaskór
3. júní. Þorbjarnarfell
Þorbjörn er stakt móbergsfell sem stendur norðan Grindavíkur. Fjallið er 243 m.y.s. Ofan af fjallinu er gott útsýni yfir mikinn hluta Reykjaness fjallgarðsins.
Gangan tekur 2 – 3 klst. *** og rúta. Ganga endar á upphafsstað
SKÓR: Gönguskór
10. júní. Garðskagi - Sandgerði
Létt fjöruganga. Sagt verður frá viðburðarríkum
atburðum sem tengjast sögu Íslendinga og gerðust á
þessum slóðum, einnig verður sagt frá landnámsmönnum
sem búsettir voru á þessu svæði.
Gangan tekur 2 – 3 klst. ** og rúta. Gengið frá A til B.
SKÓR: Gönguskór
24. júní. Menntavegurinn, Keflavík - Innri Njarðvík
Gengin verður leið sem börn úr Innri og Ytri Njarðvík þurftu að ganga til skóla á fyrrihluta síðustu aldar. Sagt verður frá sögu skólahalds í Keflavík og Njarðvík ásamt skemmtilegum atburðum sem gerðust á þessum tíma.
Gangan tekur 2 klst. * og rúta. Gengið frá A til B.
SKÓR: Strigaskór
1. júlí. Gálgaklettar - Svartsengisfell
Gengið eftir gamalli hrauntröð uppundir mikinn hamravegg sem nefnist Gálgaklettar og þaðan yfir Sundhnjúk stærsta gíginn í samfelldri óraskaðri gígaröð sem nefnist Sundhnúkagígaröðin. Hún er á náttúruminjaskrá sem einstakt náttúruvætti. Gengið verður áfram á Svartsengisfell 188 m, ofan á fellinu er stór og myndarlegur gígur sem vert er að
skoða auk útsýnisins yfir Illahraun, Bláa lónið og Eldvörpin.
Jarðfræðingar frá HS/Geysi verða með innlegg í göngunni.
Gangan tekur 3 - 4 klst. *** og rúta. Gengið frá A til B.
SKÓR: Gönguskór
8. júlí. Reykjanesviti - Sandvík
Gengið verður frá Reykjanesvitanum út í Sandvík m.a. verður skoðaður gamall vegur sem lagður var þegar Reykjanesvitinn var byggður. Jarðfræðingar frá HS/Geysi verða með innlegg í göngunni.
Gangan tekur 2 - 3 klst. ** og rúta. Gengið frá A til B.
SKÓR: Strigaskór / gönguskór
15. júlí. Keilir
Einkennisfjall Suðurnesja 378 m hár gígtappi sem trónir yfirr umhverfi sínu og er útsýni fagurt af toppi hans yfir Reykjanesskagann. Gengið verður yfir mismunandi gróft hraun að Keili
þaðan upp fjallið, fyrst í lausamöl eftir þægilegu einstigi langleiðina upp en síðustu metrana er harðara undir fæti.
Gangan tekur 2 - 3 klst. *** og rúta. Ganga endar á upphafstað.
SKÓR: Gönguskór
22. júlí. Hafnarberg - Sandvík
Gengið frá Hafnaveginum niður Hafnasandinn að Hafnarbergi sem er vinsæll fuglaskoðunarstaður. Gengið verður suður með berginu og komið upp á Hafnaveginn aftur.
Gangan tekur 2 - 3 klst. ** og rúta. Gengið frá A til B.
SKÓR: Gönguskór
29. júlí. Fiskidalsfjall - Vatnsheiði
Gengið verður frá Siglubergshálsi upp á hæsta punkt Fiskidalsfjalls 195 m. Einnig verður gengið yfir Húsafjall sem er 172 m á hæð.
Gangan tekur 2 - 3 klst. *** og rúta. Gengið frá A til B.
SKÓR: Gönguskór
5. ágúst. Umhverfi Reykjanesvirkjunar
Gengið verður um nágrenni Reykjanesvirkjunar í fylgd sérfróðra sem munu kynna svæðið og virkjunina fyrir göngufólki. M.a verður gengið niður að ströndinni þar sem heitur foss fellur í Atlantshafið. Sýningin Orkuverið Jörð verður einnig opin til skoðunar. Þar sem þetta er síðasta gangan verður slegið upp grilli á staðnum og grillað fyrir duglega göngugarpa sumarsins.
Gangan tekur 2 - 3 klst. * og rúta. Ganga endar á upphafsstað.
SKÓR: Strigaskór / gönguskór
