2

News

Reykjanes City Acquires Rights to Geothermal Resources - Reykjanesbær eignast jarðhitaréttindin

26.6.2009

Reykjanes City and Geysir Green Energy have entered negotiations regarding Reykjanes's acquisition of HS Orka's land and resources in the Reykjanes Peninsula to ensure that the peninsula's geothermal resources remain public property.  If the acquisition goes through the income for Reykjanes City from resource charges would be over ISK 50 million annually and rising. The decision to enter into these negotiations was introduced at a Reykjanes City council meeting yesterday.

If all goes as planned, Reykjanes City will buy Geysir's 32% share in HS Veitur worth ISK 4 billion, in addition to purchasing land and geothermal resources from HS Orka for ISK 840 million. In turn Reykjanes City will sell most of its shares in HS Orka to Geysir Green Energy for ISK 13 billion and by so doing freeing up considerable capital.  To finance this acquisition, as well as the future development of HS Orka, Geysir has recruited a foreign company that specialises in development in the field of renewable energy. It will buy 10,8% of Geysir's share in HS Orka. Geysir's collaboration with the foreign energy company will ensure Geysir's majority holding in HS Orka, which will increase its capital share soon.

Mr. Árni Sigfússon, mayor of Reykjanes City, is pleased that the project, which has been in preparation for the past few seasons, is well on its way. Part of the preparation was the splitting of HS into two independent companies. "We are very happy that, if the negotiations go as planned, we will have made sure that the land and the rights to our geothermal resources will remain public property, and that the use of these resources will create an income for Reykjanes City for years to come."

Mr. Ásgeir Margeirsson, CEO of Geysir Green Energy says that the transaction would be an important step for Geysir Green Energy. “Geysir will ensure a majority holding in HS Orka, which is part of our long-term goal. We will then work to increase the company's holding in the energy company, thereby supporting future projects in the area, for example the construction of an aluminium factory in Helguvík and other developments in the community through the development of renewable energy."

 


Reykjanesbær eignast jarðhitaréttindin

Tekjur bæjarins af auðlindagjaldi nema yfir 50 milljónum kr. á ári

 

Reykjanesbær og Geysir Green Energy eru nú í viðræðum um kaup bæjarins á landareignum og auðlindum HS Orku á Reykjanesi til að tryggja að auðlindin verði í opinberri eigu. Gangi samningar eftir munu tekjur bæjarins af auðlindagjaldi nema yfir 50 milljónum króna á ári og fara vaxandi. Áform þessi voru kynnt á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær. Verðmæti 32% hlutar í HS Veitum, sem bærinn kaupir af Geysi eru rúmir 4 milljarðar króna auk þess sem RNB kaupir landareignir og auðlindir af HS Orku á 840 milljónir. Reykjanesbær selur nær allan sinn hlut í HS Orku til Geysis á 13 milljarða króna og losar því umtalsvert fé. Til að fjármagna kaupin og til að standa straum af frekari uppbyggingu HS Orku hefur Geysir fengið til liðs við sig erlent þróunarfélag á sviði endurnýjanlegrar orku, sem mun kaupa 10,8% af hlut Geysis í HS Orku. Samstarf Geysis og erlenda orkufélagsins tryggir meirihlutaeign Geysis í HS Orku en stefnt er að því að auka hlutafé þar á næstunni.

Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ fagnar því að nú sé hafið ferli sem unnið hafi verið að undanfarin misseri og sem meðal annars fól í sér uppskiptingu Hitaveitu Suðurnesja í tvö sjálfstæð fyrirtæki. „Við erum afar ánægð með að ef samningar nást höfum við tryggt að jarðhitaréttindin og landið sé áfram í eigu almennings og að notkun auðlindarinnar skapi bæjarfélaginu tekjur um ókomin ár.“

Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy segir að ef áformin gangi eftir sé um að ræða mikilvægt skref fyrir Geysi. „Geysir væri með því að tryggja sér meirihlutaeign í HS Orku sem við höfum stefnt að. Við munum í framhaldinu vinna að því að auka hlutafé félagsins og styðja þannig við fyrirhugaðar framkvæmdir vegna byggingar álvers í Helguvík og annarrar uppbyggingar íslensks samfélags með þróun vistvænnar orkuvinnslu.“

 

 





This website is built with Eplica