News
Staðreyndir í tengslum við jarðhitaauðlindir og málefni RNB, HS og Geysis
Reykjanesbær 10. júlí 2009
Nauðsynleg atvinnuuppbygging
Á Reykjanesi eru gríðarlegir möguleikar til enn meiri orkunýtingar og tengdrar atvinnuuppbyggingar en þegar hefur verið ráðist í.
Áformað er að stækka núverandi jarðvarmavirkjun á Reykjanesi um 50 MW. Að auki er fyrirhugað er að byggja 30-40 MW virkjun til að vinna orku úr pækli frá háþrýstiskiljum og ráðgert er að bora fimm til sjö vinnsluholur til öflunar orku auk einnar niðurrennslisholu.
Öll þessi áform eru háð því að það takist að laða erlent fjármagn til verkefnanna.
Tilgangur fyrirhugaðra framkvæmda er að auka og bæta nýtingu þeirrar orku sem aflað er með nýtingu jarðhita á Reykjanesi og að styðja þannig við iðnaðaruppbyggingu, atvinnusköpun og eflingu byggðar á Suðurnesjum.
Fjölmargir aðilar, innlendir sem erlendir, hafa lýst áhuga á að taka þátt í því verki og hefur þegar verið hafist handa um byggingu álvers í Helguvík. Forsenda þeirrar framkvæmdar, svo og annarra sem eru á undirbúningsstigi, er nægjanleg orkuöflun á svæðinu.
Ákveðið hefur verið að 360 þús. tonna álver rísi í Helguvík sem þýðir um 500 störf í álverinu sjálfu og 600 til 700 afleidd störf í samfélaginu að auki, samtals allt að 1.200 ný störf. Á byggingartíma álvers munu að allt að 1.800 störf verða til.
Með því að reisa álver í Helguvík verður til fyrsta stóriðjan í Suðurkjördæmi, en um 80% af virkjaðri orku í landinu verður til í því kjördæmi. Skoðanakannanir sýna að um 2/3 hlutar Suðurnesjamanna eru hlynntir byggingu álvers í Helguvík.
Fyrirtækið Tomahawk Development í Danmörku hefur fengið lóð í Helguvík til að reisa kísilverksmiðju. Ráðgert er að HS Orka selji þeim 30 MW raforku til starfseminnar.
Auðlindin í eigu almennings
Reykjanesbær og Geysir Green Energy hafa náð samkomulagi um kaup bæjarins á landareignum og auðlindum HS Orku. Megintilgangur þeirra samninga er að tryggja að auðlindin verði í eigu almennings/sveitarfélaga.
Kaldavatnslindirnar á Suðurnesjum eru í eigu HS Veitna og stendur ekki til að breyta því.
Kaupverð á landi í Svartsengi og á Reykjanesi byggir á tvennu: Annars vegar á virði auðlindaréttar, sem vegur um 98% og hins vegar á verðmæti sjálfs landsins. Verðmæti auðlindaréttar, samkvæmt fyrri sölusamningum landeigenda, tengist aðeins landinu undir virkjununum og rétti til nýtingar jarðhita langt út fyrir það.
Grindvíkingum stendur til boða að ganga inn í umræddan samning um land og auðlindir í Svartsengi sem er innan þeirra lögsögu.
Viðskipti með hlutabréf
Kaupverð á hluta Reykjanesbæjar í HS Orku og sala í HS Veitum tekur mið af því háa verði sem var í viðskiptum með HS árið 2007. Samningur um sölu Reykjanesbæjar í HS Orku skilar bænum 13,1 milljarði kr. en kaupverð bæjarins í HS Veitum nemur 4,3 milljörðum.
Skuldabréfið sem Geysir greiðir með hluta kaupverðs í HS Orku hefur 3,5% lágmarksvexti og er einnig, að ósk Reykjanesbæjar, tengt álverðsþróun. Virði sölunnar eykst því fyrir Reykjanesbæ ef álverð hækkar, en lækkar ekki þótt álverð lækki.
Reykjanesbær fékk endurskoðunarfyrirtækið Deloitte til ráðgjafar við samningsgerðina og til að meta samningsdrögin. Umsögn þeirra er sú að samningarnir, eins og þeir liggja fyrir, séu gríðarlega hagstæðir fyrir Reykjanesbæ.
Mikilvægi erlendrar fjárfestingar
Ef virkja á frekari jarðhita á Reykjanesi, hvort sem það er fyrir álver, gagnahýsingu eða annan atvinnuskapandi iðnað, þarf gríðarlegt fjármagn; lánsfé og eigið fé.
Áætluð fjárfesting við að byggja 200 MW orkuver er um 50 milljarðar íslenskra kr. Við þær aðstæður sem nú ríkja á Íslandi er útilokað að opinberir aðilar, ríki eða sveitarfélög geti lagt fram það fjármagn sem þörf er á eða veitt ábyrgðir fyrir lánum. Þeir samningar sem Reykjanesbær hefur gert við Geysi Green Energy opna möguleika á því að fá erlent fjármagn inn í þetta brýna verkefni.
Áform Geysis og Magma Energy leiða af sér fyrstu fjárfestingu erlends aðila í íslensku atvinnulífi eftir hrun bankanna. Fjárfesting erlendra aðila á þessum tímum skapar mikla tiltrú þar sem fjárfestirinn og bakhjarlar hans eru mjög virtir aðilar og hafa áður sýnt árangur í langtíma fjárfestingum.
Erlend fjárfesting í HS Orku hefur jákvæð áhrif á gengi íslensku krónunnar.
Hlutverk HS Orku og HS Veitna
Með því að auka hlutafé HS Orku og fá erlenda aðila til að leggja fram fé getur uppbygging iðnaðar hafist og ný störf orðið til.
Með samningum sem nú er unnið að er komið í veg fyrir að Reykjanesbær og önnur sveitarfélög þurfi að leggja fram það fjármagn af skattfé borgaranna. Að auki mun HS Orka greiða auðlindagjald til sveitarfélagsins í samræmi við nýtingu og gæti það numið 50-75 milljónum króna á ári.
Deilt hefur verið á ákvæði samnings um að HS Orka geti leigt auðlindina til allt að 65 ára. Því er til að svara að líftími orkuvera er 50-70 ár. Því er eðlilegt að leigutími taki mið af því og er það í samræmi við gildandi lög hér á landi og venjur í öðrum löndum. Styttri leigutími myndi þýða hærra orkuverð eða að orkuver yrðu ekki byggð. Þetta er einnig í fullu samræmi við lög nr. 58 sem sett voru um þessi málefni í júní 2008.
Samkvæmt lögum er það hlutverk HS Veitna að sjá um dreifingu á heitu og köldu vatni, auk rafmagns inn á þjónustusvæði fyrirtækisins. Sú almannaþjónusta er og verður í höndum opinberra aðila og lögum samkvæmt skal slík starfsemi vera í meirihlutaeigu opinberra aðila.
Íbúar á þjónustusvæði HS Veitna hafa forgang að orkunni en samningar um auðlindir kveða skýrt á um það. Þessi þjónusta nær yfir Suðurnes, inn í Hafnarfjörð, hluta Garðabæjar, Álftanes, Árborg og allt til Vestmannaeyja.
Geysir Green Energy
Geysir Green Energy er fyrirtæki á sviði sjálfbærrar orkuvinnslu. Stefna þess er að efla íslenska orkustarfsemi og nýta íslenska þekkingu erlendis þar sem ástæða er til og tækifæri gefast.
Markmið félagsins er að taka þátt í uppbyggingu sjálfsbærrar orkuvinnslu á næstu árum og áratugum en talið er að orkuþörf jarðarbúa muni tvöfaldast á næstu 50 árum þar sem hlutfall sjálfbærrar orkuframleiðslu eykst á kostnað hefðbundnari orkugjafa.
Helstu eignir Geysis er hlutur í HS Orku hf. og Jarðborunum hf. Geysir hefur einnig unnið með góðum árangri að uppbyggingu hitaveituverkefna í Kína auk jarðvarmaverkefna í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Filippseyjum.
Enex ehf. er dótturfélag Geysis. Meðal verkefna sem lauk á síðasta ári var bygging 9,3 MW jarðvarmavirkjunar á vegum Enex í El Salvador og er virkjunin nú í fullum rekstri. Þetta er fyrsta jarðvarmavirkjunin sem er að fullu hönnuð og byggð erlendis undir stjórn íslensks fyrirtækis.
Í framhaldi af sölu ríkisins á 15,2% hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja hf. eignaðist Geysir 32%. hlut í félaginu. Heildarkaupverð var um 16 milljarðar króna.
Geysir er einn af stofnaðilum Keilis, menntastofnunar á háskólastigi á Suðurnesjum.
Í árslok 2008 voru heildareignir Geysis 31,1 milljarður króna og eigið fé 9,4 milljarðar eða 30%.
Magma Energy
Magma Energy er alþjóðlegt jarðorkufyrirtæki, stofnað árið 2008, sem vinnur að rannsóknum, þróun, og uppbyggingu jarðvarmavirkjana og stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á því sviði á heimsvísu.
Stofnandi Magma, Ross J. Beaty, er umsvifamikill kaupsýslumaður og hefur tekið þátt í stofnun fjölda alþjóðlegra hlutafélaga og á farsælan feril á því sviði. Má þar m.a. nefna Pan American Silver Corporation, eitt af leiðandi silfurnámufélögum veraldar, þar sem hann er stjórnarformaður.
Magma er fjárhagslega traust fyrirtæki. Félagið er skuldlaust og stofnandi þess er með áratuga reynslu og gott orðspor af uppbyggingu fyrirtækja sem hafa starfað í sátt við umhverfi sitt. Stjórnendur Magma leggja áherslu á að fyrirtækið er orkufyrirtæki, ekki fjárfestingafyrirtæki og allar fjárfestingar þess eru til langs tíma.
Magma á og rekur nú þegar eina jarðvarmavirkjun á vesturströnd Bandaríkjanna og vinnur að fleiri jarðvarmaverkefnum þar og í Suður-Ameríku. Magma Energy er almenningshlutafélag og er skráningu þess nýlokið á hlutabréfamarkaði í Kanada þar sem 80 fagfjárfestar tóku þátt í frumútboði vegna skráningar á 100 milljón dollara hlutafé.
Fjárfestingar Magma á Íslandi gætu orðið á bilinu 5-15 milljarðar króna. Það yrði stærsta erlenda fjárfesting á Íslandi í langan tíma og markaði tímamót. Samstarfið við Geysi er mikil fagleg styrking fyrir Magma og fagleg og fjárhagsleg styrking fyrir orkugeirann á Íslandi.
Ráðgjafar Magma vegna fjárfestingarinnar eru Glacier Partners og Capacent Glacier, sérhæfð ráðgjafarfyrirtæki á alþjóðavettvangi í jarðorku og sjávarútvegi. Verkfræðistofan Mannvit annaðist tæknilega könnun á áreiðanleika samningsaðilanna og Lögfræðistofa Reykjavíkur lagalegan áreiðanleika.
