22

News

Geysir Green Energy and Magma Energy Join Forces - Geysir Green Energy og Magma Energy taka upp samstarf

23.7.2009

Geysir Green Energy (Geysir), the Iceland-based geothermal company, and the Canadian geothermal company Magma Energy Corporation (Magma) today announced an agreement whereby Magma will acquire a 10.8 percent share in the Icelandic geothermal power company HS Orka from Geysir. Under the same agreement, Magma will receive an option to acquire about 5 percent of new shares in HS Orka by making a capital infusion of US$15 million into the business by late 2011. This cash infusion will accelerate HS Orka's project development.
> more in English

Geysir Green Energy og kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation (Magma) hafa gert með sér samkomulag um kaup Magma á tæplega 11% hlut í HS Orku af Geysi. Jafnframt er stefnt að samstarfi fyrirtækjanna um frekari þróun og nýtingu jarðvarma, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi. Til að hrinda þeim áformum í framkvæmd leggur Magma HS Orku til umtalsvert nýtt hlutafé. Fjárfestingar Magma á Íslandi nema ríflega fimm milljörðum króna og marka viss tímamót, enda er um að ræða fyrstu umtalsverðu fjárfestingu erlends aðila í íslensku atvinnulífi eftir hrun bankanna.

Kaup Magma Energy á hlut í HS Orku koma í kjölfar samkomulags Reykjanesbæjar og Geysis Green Energy um breytt eignarhald á HS Orku og HS Veitum sem nýlega hefur verið gengið frá. Með því samkomulagi eignaðist Geysir nær allan hlut Reykjanesbæjar í HS Orku en lét á móti hlut sinn í HS Veitum. Jafnframt keypti Reykjanesbær allar auðlindir út úr HS Orku en leigir félaginu nýtingarréttinn, og tryggir þannig að samfélagið njóti áfram góðs af auðlindunum.

Magma leggur Geysi lið við fjármögnun þessara viðskipta og selur Geysir Magma 10,8% af 66% hlut sínum í fyrirtækinu fyrir rúma þrjá milljarða króna. Þá mun Magma einnig leggja HS Orku til tvo milljarða króna í nýju hlutafé, í hlutafjáraukningu sem er fyrirhuguð á næstunni, til að tryggja félaginu frekara fjármagn til framkvæmda. Eignarhlutur Magma í HS Orku mun verða 16% eftir fyrirhugaða hlutafjáraukningu og eignarhlutur Geysis 52%.

Tímamótasamkomulag

Kaup Magma á hlut í HS Orku marka tímamót. Þetta er fyrsta umtalsverða erlenda fjárfestingin hérlendis eftir hrun bankanna í haust og skiptir sköpum vegna fyrirhugaðrar atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum og víðar en erfitt er við núverandi aðstæður fyrir opinbera aðila, ríki eða sveitarfélög, að leggja fram það fjármagn sem þörf er á eða veita ábyrgðir fyrir lánum.

Magma Energy er kanadískt jarðhitafyrirtæki og stefnir að því að verða leiðandi á heimsvísu. Það á og rekur jarðvarmavirkjun á vesturströnd Bandaríkjanna og vinnur að fjölmörgum jarðvarmaverkefnum, í Bandaríkjunum og Suður-Ameríku. Fjárfestingin í HS Orku og samstarfið við Geysi er mikil fagleg styrking fyrir fyrirtækið.

Ávinningur Geysis af samstarfinu er bæði faglegur og fjárhagslegur. Geysir er með sterka stöðu í vinnslu jarðvarma á Íslandi, í Þýskalandi, Kína, Bandaríkjunum og á Filippseyjum og stefnir að því að efla íslenska orkustarfsemi enn frekar og nýta þekkingu sína erlendis þar sem tækifæri gefast.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, segir að með samningnum sé stigið mikilvægt skref í að marka nýja framtíð Geysis og gera HS Orku jafnframt kleift að ráðast af fullum krafti í uppbyggingu virkjana og stuðla þannig að uppbyggingu atvinnulífsins. „Framundan eru milljarða fjárfestingar á Suðurnesjum og okkur er falið þar leiðandi hlutverk. Það er sérstakt ánægjuefni að erlent orkufyrirtæki skuli tilbúið til samstarfs við Geysi Green Energy um að leggja fram mikið fé og mikla þekkingu til að það megi takast.“

Ross J. Beaty, stofnandi, stjórnarformaður og forstjóri Magma Energy, undirstrikar að Magma er orkufyrirtæki, ekki fjárfestingafyrirtæki, og allar fjárfestingar þess eru til langs tíma. „Það er mitt mat, eftir að hafa kynnst því hversu mikil sérhæfing, þekking og tækifæri eru til staðar til þróunar jarðvarma á Íslandi, að samstarfið við Geysi og HS Orku sé hárrétt skref fyrir okkur á þessum tímapunkti og muni jafnframt styrkja orkuiðnaðinn á Íslandi, bæði faglega og fjárhagslega.“

Ráðgjafar Magma vegna fjárfestingarinnar á Íslandi voru Glacier Partners og Capacent Glacier, óháð ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfa sig í jarðvarma alþjóðlega og almennri fyrirtækjaráðgjöf á Íslandi. Verkfræðistofan Mannvit annaðist tæknilega könnun á áreiðanleika samningsaðila og Lögfræðistofa Reykjavíkur lagalegan áreiðanleika.

Um Geysi Green Energy

Geysir Green Energy er fyrirtæki á sviði sjálfbærrar orkuvinnslu. Stefna þess er að efla íslenska orkustarfsemi og nýta íslenska þekkingu erlendis þar sem ástæða er til og tækifæri gefast.

Markmið Geysis er að taka þátt í uppbyggingu sjálfsbærrar orkuvinnslu á næstu árum og áratugum en talið er að orkuþörf jarðarbúa muni tvöfaldast á næstu 50 árum þar sem hlutfall sjálfbærrar orkuframleiðslu eykst á kostnað hefðbundnari orkugjafa.

Helstu eignir Geysis nú, eftir sölu hlutarins til Magma, eru 55% hlutur í HS Orku hf. (verður 52% eftir fyrirhugaða hlutafjáraukningu) og Jarðboranir hf. Geysir hefur einnig unnið með góðum árangri að uppbyggingu hitaveituverkefna í Kína auk jarðvarmaverkefna í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Filippseyjum.

Enex ehf. er dótturfélag Geysis. Meðal verkefna sem Enex lauk á síðasta ári var bygging 9,3 MW jarðvarmavirkjunar í El Salvador og er virkjunin nú í fullum rekstri. Þetta er fyrsta jarðvarmavirkjunin sem er að fullu hönnuð og byggð erlendis undir stjórn íslensks fyrirtækis.

Geysir er einn af stofnaðilum Keilis, menntastofnunar á háskólastigi á Suðurnesjum.

Um Magma Energy

Magma Energy er kanadískt jarðhitafyrirtæki sem vinnur að þróun, og uppbyggingu jarðvarmavirkjana og stefnir að því að verða leiðandi á því sviði á heimsvísu.

Magma á og rekur nú þegar jarðvarmavirkjun í Soda Lake i Nevadafylki í Bandaríkjunum og vinnur að fjölmörgum fleiri jarðavarmaverkefnum á vesturströnd Bandaríkjanna, í Argentínu, Chile og Perú. Fyrirtækið er fjárhagslega traust, enda skuldlaust.

Magma er almenningshlutafélag og er skráningu þess nýlokið á hlutabréfamarkaði í Toronto í Kanada.

Stofnandi Magma og framkvæmdastjóri, Ross J. Beaty, er jarðfræðingur og umsvifamikill kaupsýslumaður með yfir 37 ára reynslu í alþjóðlegri námuvinnslu. Hann stofnaði og gegnir nú stjórnarformennsku í Pan American Silver Corporation, einu af leiðandi silfurframleiðslufélögum heimsins. Ross Beaty hefur einnig tekið þátt í stofnun fjölda annarra alþjóðlegra hlutafélaga á sviði námuvinnslu og á farsælan feril á því sviði allt frá árinu 1985.

 


 

Geothermal Powerhouses Geysir Green Energy and Magma Energy Join Forces


Geysir Green Energy (Geysir), the Iceland-based geothermal company, and the Canadian geothermal company Magma Energy Corporation (Magma) today announced an agreement whereby Magma will acquire a 10.8 percent share in the Icelandic geothermal power company HS Orka from Geysir. Under the same agreement, Magma will receive an option to acquire about 5 percent of new shares in HS Orka by making a capital infusion of US$15 million into the business by late 2011. This cash infusion will accelerate HS Orka's project development.

The companies also announced a partnership agreement whereby they will work together on selected geothermal projects in Iceland and internationally.

Under the agreement, Geysir will sell  an 10.8 percent share in HS Orka to Magma for just over ISK 3 billion (approximately US$25 million). Magma will hold an option to purchase up to ISK 2 billion (approximately US$15 million) of new shares in HS Orka.

After Magma´s acquisition of the shares from Geysir and purchase of new capital in HS Orka, Magma's consolidated share will be 16 percent, leaving Geysir with 52 percent.

Magma Energy is a geothermal energy company with a goal of becoming a global leader in its field. Magma owns and operates a geothermal power plant in the U.S. State of Nevada, and is involved in multiple geothermal projects in the USA and in South America. Magma's investment in HS Orka and partnership with Geysir strengthen its operations as it gains access to the experience and expert geothermal knowledge within those companies.

Geysir has a strong position in the geothermal industry in Iceland as well as in Germany, China, USA and the Philippines. The company aims to strengthen its Icelandic energy operations and utilize its knowledge and expertise internationally wherever opportunities arise.

 

Ásgeir Margeirsson, CEO, Geysir Green Energy, said that this agreement is an important step for the Geysir group of companies. The agreement empowers HS Orka to push forward in developing a 100 MW extension to its geothermal power plant. “Much of the power is sold under US dollar contracts to a large aluminium smelter that is currently under construction in south-west Iceland. HS Orka has a very strong business plan; much which is related to the supply of green electricity to the significant Icelandic aluminium smelter industry. We are very happy to see that Magma has endorsed the HS Orka business plan in such a significant manner”.

Ross J. Beaty, founder, Chairman and CEO of Magma Energy, emphasized that Magma is an energy company, not an investment company, and that all investments are long-term. “Having seen for myself the amount of specialization, knowledge and opportunities that exist for developing geothermal energy in Iceland, collaborating with Geysir and HS Orka is absolutely the right move for us at this juncture. This will most certainly strengthen Iceland's energy sector both technically and financially“.

 

About Geysir Green Energy

Geysir Green Energy, a leading geothermal energy company in the renewable industry, participates in exploration, development, construction and operation of geothermal resources worldwide. Geysir seeks leading market opportunities in the harnessing of geothermal energy and has invested around US$ 650 million in geothermal businesses and projects around the world.

Building on its extensive experience from the Icelandic geothermal arena, Geysir's objective is to help develop sustainable energy production over the coming decades. It is estimated that the energy needs of the world's population will double over the next 50 years, and that the ratio of sustainable energy production will grow at the expense of traditional energy sources.

Geysir's main assets, after the Magma transaction, are a 55 percent share in HS Orka (which will be 52 percent if Magma executes its option to buy new shares and infuse US$ 15 million into the business) and a 100 percent ownership of Iceland Drilling Ltd. Geysir has worked successfully at developing geothermal heating utility projects in China and is undertaking geothermal power projects in Germany, the USA and the Philippines.

Enex, a subsidiary of Geysir, completed the construction of a 9.3 MW geothermal binary power plant in El Salvador in 2009. The plant became the first geothermal power plant completely designed and constructed abroad by an Icelandic company.

Geysir is a founding shareholder of Keilir, an educational institution at a university level that provides hands-on courses in mechatronics and geothermal science in Iceland.

 

About Magma Energy

Magma Energy (http://www.magmaenergycorp.com), a Canadian geothermal energy company, is actively engaged in operating, developing, exploring and acquiring geothermal energy projects, and aims to become a global leader in its field.

The company currently owns and operates a geothermal power plant at Soda Lake in Nevada, USA, and is involved in multiple geothermal exploration and development projects in Argentina, Chile, Peru and Western USA. Magma, which is listed on the Toronto Stock Exchange under the ticker symbol MXY, has exceptional financial capacity for development of its projects. 

Magma's founder and CEO, Ross Beaty, is a geologist and mining entrepreneur with more than 37 years of experience in the international minerals industry. Beaty founded and currently serves as chairman of Pan American Silver Corp., one of the world's leading silver producers. Beaty has also founded and divested a number of other public mineral resource companies since 1985 including Regalito Copper Corp, Northern Peru Copper and Global Copper Corp.

Magma was advised by Glacier Partners, a specialized advisory firm, and its affiliate Capacent Glacier. The two companies focus on geothermal energy globally and on mainstream corporate finance work in Iceland. Reykjavík Law Firm acted as legal counsel to Magma, and Mannvit Engineering provided a third-party evaluation of HS Orka's operations.

 

About HS Orka

HS Orka is a leading provider of geothermal electricity and heating in Iceland. The company operates two geothermal plants, sells electricity and hot water, and is developing several new geothermal power projects.

The capacity of the Svartsengi and Reykjanes geothermal plants is 175 MW electric and 150 MW for space heating.

The electrical supply is partly sold to industrial users under power purchase agreements denominated in US$. HS Orka is adding 100 MW to existing facilities in Reykjanes, which is scheduled to go online by 2012, and is developing an additional 150 MW in other areas.

 

Photos from HS Orka's power plants are available here.

Click here for Magma Energy's Press Release.





This website is built with Eplica