2

News

Enex Kina and Sinopec JV - Enex Kína og Sinopec í samstarfi

Article in Icelandic daily newspaper Morgunbladid - Frétt Morgunblaðsins

10.8.2009

On August 9th, Icelandic daily newspaper Morgunbladid reported on an Icelandic- Chinese joint venture in geothermal development. The article was on the geothermal district heating operation in Xianyang and new projects in China.
> more in English

Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 9 ágúst s.l. var grein um samstarf Enex Kína og kínverska risafyrirtækisins Sinopec í rekstri og uppbyggingu jarðhitavirkjana til húshitunar í Xianyang ásamt framtíðarverkefnum. Greinin er eftir Baldur Arnarsson:

 Enex Kina_Morgunbladid_09082009

"Kínverska risafyrirtækið Sinopec og Enex Kína, jarðvarmafélag í eigu Geysis Green Energy (75%) og Reykjavik Energy Invest (25%), hafa tekið höndum saman um sameiginlega uppbyggingu jarðvarmaveitna i þessu fjölmennasta ríki heims, sem telur um 1.300 milljónir manna. Sinopec fer með ráðandi hlut i félaginu (51% hlutafjár) en Enex Kína með afganginn. Samningurinn þykir viðurkenning  á íslenskri jarðhitatækni i Kína en þar ber hæst uppbyggingu Enex Kína a jarðvarmaveitu i Xianyang í Shaanxi-héraði, borg með um hálfa milljón íbúa. Sú veita náði því marki i fyrra að jafnast a við hitaveituna i Reykjanesbæ að umfangi og er stefnt að því að hún fimmtánfaldist, úr rúmlega milljón upphitaðra húsnæðisfermetra, í um 15 milljónir húsnæðisfermetra innan nokkurra ára. Verkefnin geta því verið gríðarstór en umfangið fer og mun fara eftir aðstæðum hverju sinni.

Næsta verkefnið í Hebei-héraði

Fyrsta sameiginlega verkefni fyrirtækjanna er að halda áfram uppbyggingunni i Xianyang. Næsti áfangi verður svo í Xiong-sýslu í Hebei héraði þar sem áætlað er að hita upp 300.000 fermetra með jarðvarmaveitu þegar á þessu ári og svo milljón fermetra 2010. Önnur verkefni sem fyrirhuguð eru eru í Shandong-héraði, skammt frá höfuðborginni Peking, en Jiang Zhu, svæðisstjóri Geysis Green Energy í Asíu, með aðsetur í Shanghai, segir aðspurður ekki tímabært að upplýsa um frekari verkefni að svo stöddu. Hvað snertir möguleika jarðvarmans í Kína bendir Jiang á að varmagildi jarðhitans þar í landi hafi verið áætlað 250 milljarðar tonna – og er þá miðað við varmagildi úr hefðbundnum kolum – samanborið við 188,6 milljarða tonna varmagildi í áætluðum kolabirgðum i landinu. Mögulegt varmagildi – sá varmi sem sækja má í orkugjafann – er því með öðrum orðum þriðjungi meiri í jarðvarma en í kolunum. Kínverska stjórnin fer með mótun orkustefnunnar í landinu og segir Jiang það koma jarðvarmanum til góða að hún hafi einsett sér að auka  veg endurnýjanlegrar orku, með það að markmiði að hlutur hennar í orkuframboði fari í 10% árið 2010 i 15% fyrir 2020. Jafnframt sé að því stefnt  að lækka hlutfall kola í orkuframboði í 68% 2010 og svo niður i 60% árið 2020.

Ódýrara en að hita upp með kolum

Jiang segir hitun með jarðvarma samkeppnishæfa við hitun með varma sem sóttur er í kol. „Kostnaðurinn við jarðvarmahitun er um þrír fjórðu af kostnaðinum við húshitun með kolum. Verð a kolum hefur farið hakkandi i Kína og því er útlitið gott fyrir jarðvarmann i Kína. Við þetta bætist að jarðvarmavirkjunum fylgir kolefniskvóti, vegna þess samdráttar i koldíoxíðlosun sem starfsemi þeirra býður upp á, en hann má síðan endurselja fyrir umtalsverðar fjárhæðir.“ – Hvaða fjárhæðir er hér verið að tala um?  „Ég get nefnt sem dæmi að fyrir hverja 100.000 húsnæðisfermetra sem hitaðir eru upp með jarðvarma fæst kolefniskvóti að andvirði frá 60.000 til 80.000 evra. Sú viðbót er mikilvæg fyrir reksturinn sem stendur að öðru leyti fyllilega undir sér. Það er góð arðsemi af rekstrinum.“

Mikill áhugi stjórnvalda

Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu sýna kínversk stjórnvöld jarðvarmauppbyggingunni athuga og má rifja upp þau orð Zhaos Zhengyong, fyrsta aðstoðarríkisstjóra Shaanxi-héraðs, að Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hafi sýnt persónulegan áhuga á samstarfi við íslensk fyrirtæki á þessu sviði. Jiang tekur aðspurður undir að Kínastjórn sýni uppbyggingunni áhuga og bendir í því samhengi a að forstjóri Sinopec hafi ígildi stöðu ráðherra í Kína.

„Reynslan i Xianyang hefur sýnt okkur hversu arðbær jarðvarmaverkefni geta verið í Kína. Nú hefst sókn á önnur svæði i Kína með öflugum innlendum aðila. Þetta sýnir að minni hyggju hversu mikils metin íslensk jarðhitaþekking er i Kína.“

Eitt stærsta fyrirtæki heims

Kínverska ríkisfyrirtækið Sinopec er 9. stærsta fyrirtæki heims, ef horft er til markaðsvirðis, samkvæmt árlegum lista tímaritsins Fortune, Global 500, sem birtur var í ársbyrjun. Á vefsíðu Fortune segir að Sinopec hafi um 80% hlutdeild á kínverska olíumarkaðnum. Starfsmenn eru sagðir 639.690 en ef dótturfyrirtæki eru talin með fer fjöldi þeirra yfir milljón. Umsvifin eru gríðarleg. Veltan á fjárhagsárinu 2008 var tæpir 208 milljarðar dala eða sem svarar 26.135 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Þá var hagnaður ársins 2008 um 246 milljarðar króna eða um 53% minni en 2007, sem skýrist af hækkandi innkaupsverði á olíu. Fyrirtækið er í senn olíu- og gasvinnslurisi og umsvifamikið í efnaiðnaði. Sinopec Star er dótturfélag olíurisans en það hefur á stefnu sinni að endurnýjanleg orka verði ein af þremur meginstoðunum í rekstri þess."

Frétt í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 9 ágúst 2009.

 


 

Enex Kina and Sinopec JV

On August 9th, Icelandic newspaper Morgunbladid reported on the JV between Enex China and Chinese conglomerate Sinopec. The article was written by Baldur Arnarsson.

 Enex Kina_Morgunbladid_09082009

“Chinese oil giant Sinopec and Enex China, a geothermal company owned by Geysir Green Energy (75%) and Reykjavik Energy Invest (REI, 25%), have teamed up to develop geothermal district heating projects in China.

The company is majority owned by Sinopec (51%) and Enex China with the rest.

The agreement highlights the accomplishments of Enex China with its district heating project in Xian Yang, a 500,000 people city in Shaanxi Province.

The size of the district heating system of Xian Yang is as big as for the city of Reykjanesbaer in Iceland, but is expected to nearly fifteen-fold from around 1 million square metres to around 15 million square meters within the next few years. So potentially this could be the largest geothermal district heating system worldwide.

The first task of the company is to extend the district heating system in Xian Yang, with the next project expected to provide geothermal heating for around 300,000 square meters in the municipality of Xiong in Hebei Province later this year and a million square meters by 2010. Other projects planned are in Shandong province, close to the country's capital Bejing. According to Jiang Zhu, Geysir Green Energy's representative in China based in Shanghai, “it is too early to mention other projects that the company is looking at for the moment.”

Sinopec is the 9th biggest company in the world based on market capitalization. The company has an 80% market share in China's oil market and employs of around 640,000, with daughter companies that number would go beyond 1 million staff members. The company Sinopec Star is the daughter company that is pushing the renewable energy business on behalf of the mother company.

The former joint venture that built up the Xian Yang district heating system, is called Shaanxi Green Energy and was a joint venture between Enex China and a daughter company of Sinopec.”

 

Source: Icelandic Morgunbladid

Rough translation from www.thinkgeoenergy.com

 

 





This website is built with Eplica