News
Geysir Green Energy at the local exhibition Reykjanes 2009 - Sýningin Reykjanes 2009 á Ljósanótt
The exhibition “Reykjanes 2009” will take 
place in the Sports Hall of Ithrottaakademian from 4th to 6th of September, coinciding with the tenth anniversary of Reykjanesbaer's Ljósanótt ("Night of Lights") family and cultural festival.
> more in English
Sýningin Reykjanes 2009 verður haldin í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og þar verður kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu.
Geysir Green Energy mun taka þátt í sýningunni ásamt Bláa Lóninu og HS Orku en þessi fyrirtæki eru samstarfsaðilar sýningarinnar ásamt öðrum öflugum fyrirtækjum úr atvinnulífinu á Reykjanesi; Háskólavellir, KADECO – Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Keilir, Norðurál og Sparisjóðurinn í Keflavík.
Um 40 sýnendur af öllum stærðum og gerðum munu kynna starfsemi sína, vörur og þjónustu á Reykjanesi 2009. Þar á meðal eru mörg stærstu fyrirtækin á svæðinu sem meðal annars standa að kröftugri uppbyggingu á Reykjanesi á einn eða annan hátt um þessar mundir.
Geysir býður alla gesti Ljósanætur hjartanlega velkomna á sýningarbás Geysis, HS Orku og Bláa Lónsins, þar sem að haldnir verða fyrirlestrar um jarðhita, tækni og búnað til virkjunar jarðhita ásamt nýtingarmöguleikum.
Sýningin verður opnuð föstudaginn 4. september og megináhersla lögð á dagskrá fyrir fagaðila þann daginn. Almenningur verður boðinn velkominn alla sýningardagana, föstudag, laugardag og sunnudag og er aðgangur ókeypis. Opnunartímar eru frá 17:00 til 20:00 föstudaginn 4. september en 12:00 – 18:00 laugardag og sunnudag.
Auk kynninga á því sem fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Reykjanesi hafa upp á að bjóða verður reglulega boðið upp á skemmtiatriði í tengslum við Ljósanótt. Sent verður beint út frá sýningunni á útvarpsstöðinni Bylgjunni föstudag og laugardag.
Nánari upplýsingar um Reykjanes 2009 má finna á slóðinni http://www.reykjanes2009.is
Geysir Green Energy at “Reykjanes 2009” the local exhibition
The exhibition “Reykjanes 2009” will take place in the Sports Hall of Ithrottaakademian from 4th to 6th of September, coinciding with the tenth anniversary of Reykjanesbaer's Ljósanótt ("Night of Lights") family and cultural festival. The theme of the exhibition is “knowledge, energy, opportunity” and the aim is to present the range of enterprises and services in the Reykjanes region.
Geysir Green Energy will participate in the exhibition with a special booth with the companies of Blue Lagoon and HS Orka. Other exhibitors are companies on Reykjanes Peninsula; Asbru Haskolavellir, Kadeco, Keilir - Atlantic Center of Excellence, NA Century Aluminum and Keflavik Savings Bank. All together, there are 40 exhibitors of different sizes that will present their products and services on the “Reykjanes 2009”. They include many of the largest companies in the region.
Geysir invites all guests of the "Night of Lights" - Reykjanesbaer's family and cultural festival to visit the company's booth at the exhibition, where lectures will be given on geothermal, technologies and equipment for geothermal utilization and potential.
The exhibition will open on Friday, 4th of September, the emphasis that day being on professionals. The exhibition will open to all visitors on Friday 4th September at 17 to 20, and between 12 and 18 on Saturday the 5th and Sunday the 6th. Admission is free.
In addition to the exhibition booths from companies, institutions and municipal authorities on the Reykjanes Peninsula, there will be entertainment numbers in connection with the Night of Lights festival. On Friday and Saturday the Icelandic radio station 'Bylgjan' will be broadcasting its program from the exhibition.
For further information on Reykjanes 2009: http://www.reykjanes2009.is
