24

News

New CEO of Geysir Green Energy -
Forstjóraskipti hjá Geysi Green Energy

14.12.2009

The board of Geysir Green Energy (Geysir) has, in accordance with its commercial bank, made the decision to decrease the company's debts by selling its assets over the next quarters. Following this new policy formulation, Asgeir Margeirsson has decided to resign as Chief Executive Officer. Alexander K. Gudmundsson, Geysir's Chief Financial Officer has been hired in his place.
>
more in English

Stjórn Geysis Green Energy (Geysir) hefur, í samráði við viðskiptabanka félagsins, tekið ákvörðun um að vinna markvisst að lækkun skulda félagsins með sölu eigna þess á næstu misserum. Í tengslum við þá stefnumótun hefur Ásgeir Margeirsson ákveðið að hætta sem forstjóri félagsins. Alexander K. Guðmundsson, fjármálastjóri Geysis, hefur verið ráðinn í hans stað.

„Ég var búinn að tilkynna það fyrir nokkru að ef þessi staða kæmi upp teldi ég mig ekki réttan aðila til að leiða það söluferli. Ég hef unnið að vexti og uppgangi Geysis allt frá því félagið var stofnað og tel eðlilegt að aðrir beri ábyrgð á þeirri vinnu sem nú er framundan. Því varð að samkomulagi milli mín og stjórnar félagsins að ég léti af störfum. Ég óska nýjum forstjóra velfarnaðar í starfi og þakka stjórn og starfsmönnum Geysis ánægjulegt samstarf á liðnum árum,“ segir Ásgeir Margeirsson, fráfarandi forstjóri.

„Það er ekkert leyndarmál að nokkrir af helstu eigendum félagsins urðu illa úti í bankahruninu og hafa því ekki getað stutt sem skyldi við bakið á félaginu. Þá gerir staðan á fjármálamörkuðum okkur erfitt um vik að fjármagna Geysi eins og við helst kysum. Þess vegna var ákveðið að lækka skuldir félagsins með sölu eigna Geysis og mun það verkefni verða unnið í fullu samráði við viðskiptabanka félagsins á næstu misserum,“ segir Alexander K. Guðmundsson, nýr forstjóri.

Helstu eignir Geysis eru Jarðboranir hf og 57,4% hlutur í HS Orku hf. Geysir hefur unnið með góðum árangri að uppbyggingu hitaveituverkefna í Kína auk jarðvarmaverkefna í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Filippseyjum. Geysir er einn af stofnaðilum Keilis, menntastofnunar á háskólastigi á Suðurnesjum.  Dótturfélag Geysis, Enex ehf., lauk á síðasta ári byggingu 9,3 MW jarðvarmavirkjunar í El Salvador og er virkjunin nú í fullum rekstri.

 


New CEO of Geysir Green Energy

 

The board of Geysir Green Energy (Geysir) has, in accordance with its commercial bank, made the decision to decrease the company's debts by selling its assets over the next quarters. Following this new policy formulation, Asgeir Margeirsson has decided to resign as Chief Executive Officer. Alexander K. Gudmundsson, Geysir's Chief Financial Officer has been hired in his place.

 "A while ago I announced that if this were to be the case, I would not be the right person to lead the process. I have been working on the growth and rise of Geysir Green Energy ever since the company was founded and believe it is necessary that others be responsible for the work that now lies ahead. As a result, the board and I have agreed that I shall be released from my position as CEO. I wish the new CEO the best of luck and thank the board and employees of Geysir for an enjoyable working relationship over the past years," says Asgeir Margeirsson.

"It is no secret that several of the company's major shareholders suffered a bad hit during the collapse of the banking system, and have not been able to support the company as they should. On top of that, the current financial situation has made it difficult to finance Geysir in a manner that we would prefer. Therefore we have decided to lower the company's debts by selling off its assets over the next few quarters, which we will do in full consultation with our commercial bank," says Alexander K. Gudmundsson, the new CEO.

Geysir's primary assets are a 57.4% share in HS Orka hf. and full ownership in Jardboranir hf (Iceland Drilling). The company participates in a joint venture geothermal operation in China, as well as geothermal projects in Germany, United States, and the Philippines. Geysir is also a founding shareholder of Keilir, a university level educational centre in the South-West of Iceland. Last year Geysir's subsidiary, Enex ehf., finished the construction of a 9.3 MW geothermal power station in El Salvador, which is now in full operation.

 





This website is built with Eplica