News
Magma to Acquire Geysir Green Energy's Share in HS Orka - Magma eignast hlut Geysis Green Energy í HS Orku
Magma Energy Sweden AB, a fully owned subsidiary of the Canadian geothermal company Magma Energy Corp., which is registered at the Toronto Stock Exchange (TSX : MXY), and Geysir Green Energy (GGE) have reached an agreement to the affect that Magma will acquire all of GGE's shares in HS Orka hf., making Magma a majority stockholder in the company. The purchase price is ISK 16 billion and Magma intends to further empower HS Orka's operations in the coming seasons as well as attracting long term investors, Icelandic or offshore, to join in.
> more in English
Dótturfyrirtæki kanadíska jarðhitafyrirtækisins Magma Energy og Geysir Green Energy hafa náð samkomulagi um að Magma kaupi öll hlutabréf Geysis í HS Orku og verður Magma þar með aðaleigandi félagsins. Kaupverðið er um 16 milljarðar króna. Forsvarsmenn Magma ætla sér að efla starfsemi HS Orku til muna á næstu misserum og fá jafnframt til liðs við sig sterka kjölfestufjárfesta, t.d. íslenska lífeyrissjóði. Rétt er að leggja áherslu á að orkuauðlindir verða ekki í eigu Magma Energy. Viðræður um forkaupsrétt íslenska ríkisins að eignarhlut í HS Orku kjósi Magma að selja hlut sinn.
Samkomulagið felur í sér að Magma Energy Sweden AB, sem er að fullu í eigu Magma Energy Corp. sem skráð er í kauphöllinni í Toronto, eignist 52,3% hlut Geysis í HS Orku hf. og yfirtaki jafnframt nýlegar skuldbindingar Geysis um kaup á viðbótarhlutafé sem nemur 3% hlutafjár HS Orku. Magma verður þar með langstærsti hluthafi félagsins með 98,53% hlut en aðrir hluthafar í HS Orku eru sveitarfélögin Garður, Grindavík, Reykjanesbær og Vogar - með samanlagt 1,47% hlut en skv. samþykktum HS Orku eiga hluthafar félagsins forkaupsrétt að viðskiptum með hluti í félaginu, í réttu hlutfalli við eignarhlut sinn.
Heildarfjárfesting Magma á Íslandi 32 milljarðar króna
Kaupverðið á hlut Geysis í HS Orku er um 16 milljarðar króna og verður það greitt með reiðufé og yfirtöku skuldabréfa. Hluti greiðslunnar getur þó verið í formi hlutabréfa í kanadíska móðurfélaginu. Eftir viðskiptin nemur heildarfjárfesting Magma í íslensku atvinnulífi samtals rúmum 32 milljörðum króna.
„Það er okkur mikið ánægjuefni að hafa náð þessu samkomulagi og HS Orka er nú orðið flaggskip okkar í enn frekari sókn á sviði jarðhitanýtingar, bæði hér á Íslandi og á alþjóðavettvangi,“ segir Ross J. Beaty, stjórnarformaður og forstjóri Magma. „Við stöndum frammi fyrir afar þýðingarmikilli uppbyggingu gufuaflsvirkjana hér á Suðurnesjum, s.s. stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari rannsóknum og framkvæmdum til að efla atvinnuuppbyggingu, bæði svæðisbundið og á landsvísu. Við hyggjumst auka hlutafé HS Orku og höfum hug á að fá þar til liðs við okkur trausta kjölfestufjárfesta, t.d. íslenska lífeyrissjóði, til að tryggja að HS Orka geti hafist handa við nauðsynlegar framkvæmdir og rannsóknir því við viljum sýna Íslendingum að við ætlum að reka þessa starfsemi með langtímahagsmuni allra hlutaðeigandi að leiðarljósi.“
Forstjóri Magma áréttar einnig að einn mesti styrkleiki HS Orku sé hin mikla þekking og reynsla á sviði jarðhitanýtingar sem starfsfólk fyrirtækisins og fagaðilar á Íslandi búi yfir. „Þetta eru mikil verðmæti sem munu nýtast Magma til enn frekari sóknar á alþjóðlegum mörkuðum.“
Stjórn HS Orku í tryggum höndum
Alexander K. Guðmundsson, forstjóri Geysis segir að með sölunni á HS Orku sé verið að fylgja ákvörðun stjórnar Geysis í þá átt að lækka skuldir félagsins með sölu eigna.“Salan léttir verulega á skuldum Geysis og auðveldar félaginu til muna að styðja við aðrar eignir í eignasafninu.“
Alexander fagnar því að traustur fjárfestir með getu til að tryggja og efla enn frekar starfsemi HS Orku til framtíðar hefur nú eignast félagið. „Við höfum átt frábært samstarf við Magma í stjórn HS Orku undanfarna mánuði og ég er ánægður með þessi viðskipti. Ég veit að stjórn HS Orku verður í tryggum höndum og ég er þess fullviss að áfram verður haldið því þróunar- og uppbyggingarstarfi sem þegar hefur verið markað og byggir á þekkingu og reynslu frumkvöðlanna hjá HS Orku.“ Alexander bendir jafnframt á að HS Orka hafi nýlega aukið eigið fé með framlagi frá eigendum sínum sem styrkti félagið verulega og gerir því kleift að ráðast í áframhaldandi uppbyggingu gufuaflsvirkjana á Suðurnesjum.
Orkuauðlindirnar ekki í eigu Magma – viðræður um forkaupsrétt íslenska ríkisins á ráðandi hlut í HS Orku
Magma eignaðist fyrstu hlutabréfin í HS Orku árið 2009, í kjölfar samkomulags Reykjanesbæjar og Geysis um breytt eignarhald á HS Orku og HS Veitum. Geysir eignaðist þá nær allan hlut Reykjanesbæjar í HS Orku en lét á móti hlut sinn í HS Veitum. Til að tryggja að orkuauðlindirnar yrðu í almannaeigu keypti Reykjanesbær allar auðlindir HS Orku af félaginu og nú leigir bærinn HS Orku nýtingarréttinn að orkuauðlindunum í samræmi við gildandi lög þar um – og nærsamfélagið nýtur arðsins.
Þá hafa átt sér stað viðræður milli íslenskra stjórnvalda og Magma þess efnis að ef Magma kýs á einhverjum tímapunkti að selja meirihluta í HS Orku - þá skuli íslensk stjórnvöld hafa forkaupsrétt á umræddum hlut.
Skýringarmynd á íslenskum raforkumarkaði, helstu einingar og þátttakendur:

Nánari upplýsingar veita:
Alexander K. Guðmundsson, forstjóri Geysis Green Energy ehf. Sími: 665 2060
Um HS Orku
HS Orka er stærsta orkufyrirtæki Íslands í einkaeigu og framleiðir sem nemur 9% af heildarorkuþörf Íslands. Heildarorkuframleiðsla virkjana félagsins í Svartsengi og á Reykjanesi er samtals 175 MW og að auki er varmaframleiðsla fyrirtækisins (heitt vatn til húshitunar) 150 MW.
Raforkuframleiðsla með jarðgufu hófst árið 1976 í Svartsengi og var það fyrsta orkuverið á Íslandi þar sem tvinnað var saman raforkuframleiðslu og orkuvinnslu til húshitunar. Uppsett afl til raforkuframleiðslu er um 75 MW og fara tæp 28 MW til Norðuráls í Hvalfirði.
Raforkuframleiðsla hófst árið 2006 í Reykjanesvirkjun. Uppsett afl virkjunarinnar er 100 MW í dag og er hún nær öll seld til Norðuráls í Hvalfirði.
Frekari uppbygging á starfsemi HS Orku er fyrirhugð sem mun auka orkuframleiðslu félagsins í 405 MW fram til ársins 2015. Heildarfjárfesting þessara verkefna er áætluð 60 -70 milljarðar króna og er fyrirhugað að stór hluti framleiðslunnar fari til reksturs nýs álvers Norðuráls í Helguvík. Undirbúningur er þegar hafinn að stækkun Reykjanesvirkjunar um 80 MW.
Unnið er að borun tilraunahola og Fuji Electric í Japan hefur framleitt 50 MW vélasamstæðu sem er væntanleg til Íslands í júní n.k.
Útboð vegna stækkunar stöðvarhúss Reykjanesvirkjunar hefur verið undirbúið, en framkvæmdir eru háðar virkjanaleyfi.
Áætlaður kostnaður við stækkun stöðvarhússins er um tveir milljarðar króna og skapar verkefnið fjölmörg störf á Suðurnesjum við jarðvinnu- og byggingarframkvæmdir.
Magma to Acquire Geysir Green Energy's Share in HS Orka
Magma Energy Sweden AB, a fully owned subsidiary of the Canadian geothermal company Magma Energy Corp., which is registered at the Toronto Stock Exchange (TSX : MXY), and Geysir Green Energy (GGE) have reached an agreement to the affect that Magma will acquire all of GGE's shares in HS Orka hf., making Magma a majority stockholder in the company. The purchase price is ISK 16 billion and Magma intends to further empower HS Orka's operations in the coming seasons as well as attracting long term investors, Icelandic or offshore, to join in.
The agreement states that Magma Energy Sweden AB, which is owned by Magma Energy Corp., will acquire GGE's 52.3% share in HS Orka. Magma will also take over GGE's obligations to subscribe for 3% new shares in HS Orka, making Magma the largest shareholder in HS Orka, with 98.53%. Other shareholders are the local municipalities Gardur, Grindavik, Reykjanesbaer and Vogar – with combined shares of 1.47%. According to HS Orka's Articles of Association, the shareholders have a pre-emptive right on share trade, in proportion to their share.
Magma's investment in Iceland ISK 32 billion
The purchase price for GGE's share in HS Orka is around ISK 16 billion and is to be paid in part with cash, in part by taking over bonds, and at Magma's option in part with shares in Magma Energy. Following this transaction, Magma's total investment in Iceland will amount to roughly ISK 32 billion.
“We are extremely pleased with this deal and HS Orka has now become the flagship in our on-going journey into the field of geothermal energy, both here in Iceland, as well as internationally," says Ross J. Beaty, Chairman and CEO of Magma Energy: "We are faced with very important developments for HS Orka and its geothermal energy plants here in the Reykjanes peninsula, such as the expansion of the Reykjanes power plant as well as further research and development to strengthen the economy, both in the region as well as in Iceland. We intend to increase HS Orka's share capital and wish to attract solid investors to come aboard, for example the Icelandic Pension Funds, to ensure that HS Orka is able to commence working on the much needed developments. We intend to manage this company with the long-term benefits of all stake-holders in mind.”
Magma's CEO also emphasizes that among HS Orka's great assets is the knowledge, skills, and experience in geothermal energy the staff has acquired over the years, as well as the numerous geothermal professional experts in Iceland. “This will be of great value to Magma, as the company expands further into international markets.”
HS Orka in good hands
GGE's CEO, Alexander K. Gudmundsson, says that by selling the shares in HS Orka, GGE is acting according to its board's decision to lower the company's debt by selling off assets. “The sale makes it easier for GGE to support other assets within its portfolio.”
Mr. Gudmundsson is pleased that HS Orka is being taken over by a solid investor with the capability to ensure and strengthen the company's ongoing development and expansion “We have had an excellent working relationship with Magma on the board of HS Orka over the last few months, and I welcome this transaction. I know that HS Orka will be in good hands and I'm confident they will continue to expand and develop the company, using the knowledge and experience of the pioneers at HS Orka." Alexander also points out that HS Orka's main shareholders have recently increased the company's share capital, strengthening it considerably, and enabling HS Orka to go ahead with further development in the field of geothermal energy in Reykjanes.
Energy resources not owned by Magma
Magma obtained its first shares in HS Orka only last year after Reykjanesbaer municipality and GGE agreed on changing the ownership of HS Orka and HS Veitur, wherein GGE acquired almost all of Reykjanesbaer's shares in HS Orka and handed over instead its shares in HS Veitur. To secure public ownership of the energy resources, all of HS Orka´s energy resource rights were sold to Reykjanesbaer and HS Orka now pays the municipality a royalty for harnessing the renewable energy resources - and the local community benefits.
Furthermore, Magma Energy is also in negotiations with Icelandic authorities on the possibility of them having the first right to buy, if Magma Energy were at some point to sell a majority stake in HS Orka.
The Icelandic power market, main entities and participants:

For further information contact:
Alexander K. Guðmundsson, CEO of Geysir Green Energy, Tel. +(354) 665 2060
About HS Orka
HS Orka is the largest privately owned energy company in Iceland producing 9% of the country's power needs. Installed geothermal power capacity is 175 megawatts ("MW") from the Svartsengi and Reykjanes power plants. In addition, HS Orka generates 150 MW of thermal power for district heating.
Much of HS Orka´s power is sold under US dollar contracts to a large aluminium smelter that is one of the world's lowest cost aluminium producers.
Planned expansions will increase HS Orka's geothermal power production to 405 MW by 2015, with a total extimated investment cost of ISK 60 – 70 billion.
Preparations to increase the Reykjanes power plant's production by 80 MW are under way.
Research wells are being drilled and the construction of a 50 MW turbine is en route from Fuji Electric in Japan, due to arrive in Iceland in June 2010.
A tender for expanding the power house has been prepared, and will be implemented once an exploitation permit has been issued.
The expansion of the power house is estimated to cost around ISK 2 billion, bringing substantial work opportunities in the area.
