18

News

Geysir, HS Orka og Norðurál standa fyrir 10 gönguferðum á Reykjanesi í sumar

Geysir, HS Orka and Nordural Organize 10 Hiking Tours around Reykjanes

26.5.2010

Þriðja árið í röð hafa fyrirtækin ákveðið að bjóða upp á metnaðarfulla göngudagskrá um Reykjanesið undir leiðsögn Rannveigar Garðarsdóttur leiðsögumanns. Nú eins og árið 2009 eru það HS Orka, Geysir Green Energy og Norðurál í samvinnu við Víkurfréttir, SBK og Björgunarsveitina Suðurnes. Bláa Lónið kemur einnig að dagskránni þetta árið.

Í boði verða alls tíu göngur á tímabilinu júní - ágúst. Um er að ræða göngur við allra hæfi, léttar göngur í bland við erfiðari og lengri fjallgöngur. Að þessu sinni var einnig ákveðið að bjóða upp á eina hjólaferð. Í leiðalýsingu fyrir gönguferðirnar er tilgreint hvað gangan taki langan tíma, erfiðleikastig, hvort göngu ljúki á sama stað og hún hófst á og hvort farið sé á áfangastað með rútu. Áætlaður tími gerir ekki ráð fyrir ferðatíma til og frá göngustað sem getur verið breytilegur. Í hverri göngu er tekinn nestispása þar sem sagt er frá ýmsum fróðleik um nánasta umhverfi.

Göngurnar hefjast kl. 19:00 við SBK Grófinni 2-4. Tvær göngur hefjast fyrr, sjá rauðlitað í dagskrá. Kostnaður við rútuferð er kr. 1.000 pr. mann. Fólk getur einnig komið sér sjálft til og frá göngustað. Fyrsta gangan er 2.júní þar sem gengið verður frá Reykjanesvita yfir Stampahraun með ströndinni norður í Stóru-Sandvík.

 

Nánari upplýsingar

Hægt er að nálgast upplýsingar um göngurnar með því að opna viðhengið og á eftirfarandi heimasíðum:  www.hs.is - www.vf.is - www.leidsogumenn.is - www.facebook.com/reykjanes gönguferðir.

 

Hvað skal hafa meðferðis?

Göngufólk er á eigin ábyrgð í göngunum. Það sem gott er að hafa meðferðis er:

- góðir gönguskór / göngustafi

- léttan bakpoka

- viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri

- létt nesti (samloku, ávexti, kex)

- drykkjarföng

- baðföt og handklæði í síðustu gönguna





This website is built with Eplica