News
Geysir og HS standa fyrir gönguferðum um Reykjanesið í sumar
Gönguferðir með leiðsögn árið 2008
Áhugi almennings á útivist hefur aukist mikið á undanförnum árum og skipulagðar gönguferðir eru mjög vinsælar á meðal útivistarfólks.
Hitaveita Suðurnesja hf (HS hf) og Geysir Green Energy (Geysir) hafa ákveðið að standa fyrir skipulögðum gönguferðum um Reykjanesið í sumar í samstarfi við SBK, VF og Rannveigu Garðarsdóttur leiðsögumann. Einnig munu jarðfræðingar HS hf, jarðfræðingar Geysis ásamt prestum Keflavíkurkirkju koma að gönguferðunum með sértækari fróðleik.
HS hf hefur staðið að vinnslu orku úr jarðhitakerfinu á Reykjanesskaganum í rúm 30 ár. Með nýtingu orkunnar hafa verið sköpuð þægindi og hagsæld fyrir fólk á svæðinu. Geysir er annar stærsti eigandi HS hf. Fyrirtækin hafa það bæði að leiðarljósi að ganga vel um náttúruna og hafa lagt sitt af mörkum til að gera hana eftirsóknarverðari fyrir fólk að heimsækja. Það er því vel við hæfi að þessi fyrirtæki sameinist og bjóði upp á skipulagðar gönguferðir um svæðið þannig að fólk fái að njóta alls sem þessi náttúruperla hefur upp á að bjóða.
Reykjanesskagi er kjörlendi göngufólks og þar geta allir fundið gönguferðir við sitt hæfi. Náttúran er mögnuð, láglendi mikið, virkar gosdyngjur með allri sinni litadýrð, þar er hægt að ganga í gegnum aldir á jarðfræðilegan mælikvarða. Mjög áhugavert er að ganga gamlar þjóðleiðir þar sem klappað er í hraunið eftir hófa og fætur liðinna alda, landnámssagan er eftirtektarverð og breyting á búsetu á Reykjanesskaga er einnig merkileg.
Hvað er þá betra en að fara á tveimur jafnfljótum, njóta náttúru og efla um leið sál og líkama. Við hvetjum alla til að taka þátt því nú er tækifærið.
Boðið verður upp á 13 gönguferðir á tímabilinu apríl – ágúst 2008. Í bæklingi þessum er göngudagskrá fyrir sumarið 2008. Gönguferðirnar verða við allra hæfi þannig að fólk hafi gagn og gaman af.
Leiðsögn
Leiðsögn í öllum gönguferðunum verður í höndum Rannveigar Garðarsdóttur leiðsögumanns, hún hefur mikla reynslu af gönguferðum um Reykjanesskagann. Hún stóð meðal annars fyrir gönguhóp sem gekk vikulega um Reykjanesskagann um sumartímann árin 2001-2006. Auk þessa hefur Rannveig ferðast með ýmsa hópa um Reykjanesskagann og allt landið sem leiðsögumaður. Hún hefur verið í forsvari Leiðsögumanna Reykjaness frá 2005 – 2007.
Hún hefur bæði lokið Ferðafræði í Ferðamálaskóla Kópavogs árið 2003 og leiðsögunámi frá leiðsöguskóla Íslands árið 2005.
Rannveig starfar sem verkefnisstjóri á Upplýsingamiðstöð Reykjaness í ýmsum ferðatengdum verkefnum ásamt því að leiðbeina ferðamönnum sem ferðast um Ísland.
Gönguferðir
Allar gönguferðirnar hefjast hjá SBK að Grófinni 2-4 þar sem farið verður með rútu. Gengið er á miðvikudögum og hefjast allar gönguferðirnar kl. 19:00 og kostar kr. 500. Í leiðalýsingu fyrir gönguferðirnar verður tilgreint hvað þær taka langan tíma ásamt erfiðleikastigi. Í hverri gönguferð er tekinn nestispása þar sem sagt frá ýmsum fróðleik um nánasta umhverfi. Vert er að benda göngufólki á að allir eru á eigin ábyrgð í gönguferðunum og þurfa því að huga að eigin öryggi. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á eftirfarandi heimasíðum www.hs.is, www.sbk.is og www.vf.is .
Erfiðleikastig
* Stutt ganga, ekki mikið upp í móti
** Lengri ganga , ekki mikið upp í móti
*** Fjallganga, lengri ganga og upp í móti
30. apríl. Innri Njarðvík - Grímshóll – Hólmabúðir *
Gengið frá Innri Njarðvík með ströndinni upp á Grímshól, hæsta punkt á Stapanum. Þaðan verður gengið að Hólmabúðum undir Stapanum og gengið þaðan inn í Voga.
Gangan tekur 2 – 3 klst.
7. maí. Straumsvík - Hvassahraun *
Gengið verður með ströndinni, gamlar tóftir skoðaðar og sagt frá búsetu á þessu svæði. Á 19. öld voru þarna lögbýli, hjáleigur og þurrabúðir sem röðuðu sér með ströndinni frá Straumsvík að Lónakoti
Gangan tekur 2 - 3 klst.
14. maí. Höskuldarvellir – Oddafell **
Gengið eftir Oddafelli endilöngu sem er 2ja km langt. Við enda fjallsins er „Hverinn eini“ sem var einn stærsti hver á Suðvesturlandi en er kulnaður í dag. Gengið verður með hlíðum Oddafells til baka að Höskuldarvöllum.
Gangan tekur 3-4 klst.
21. maí. Lambafellsklofi *
Lambafell er klofið í tvennt og verður gengið í gegnum fjallið sem er sérstök upplifun. Gangan byrjar við Eldborg við Höskuldarvelli. Svæðið er afar mosavaxið og algjört náttúrulistaverk.
Gangan tekur 2-3 klst.
28. maí. Keilir ***
Keilir er 378 m hár gígtappi sem trónir yfir umhverfi sínu. Útsýni af tindinum er yfir allan Reykjanesskaga. Skemmtileg kvöldganga við allra hæfi.
Gangan tekur 2 - 3 klst.
4. júní. Trölladyngja og Grænadyngja ***
Dyngjurnar tvær sem standa eins og verðir um Höskuldarvelli 400 m háar. Jarðfræðingar frá Hitaveitu Suðurnesja/Geysir Green Energy verða með innlegg um jarðfræði. Gangan er við hæfi allra sem vanir eru fjallgöngum.
Gangan tekur 3-4 klst.
11.júní. Hópsnes **
Gengið frá Grindavík að Þórkötlustöðum. Út af Hópsnesi hafa orðið miklir skipa- og mannskaðar og má víða sjá minjar um það.
Gangan tekur 2 - 3 klst.
18.júní. Reykjanesvitar **
Gengið frá „nýja“ Reykjanesvitanum út á Reykjanestá. Skoðaðar verða hella og hraunmyndanir í klettóttri fjörunni. Prestar frá Keflavíkurkirkju verða með söguleg innlegg í göngunni.
Gangan tekur 2 - 3 klst.
25. júní. Fiskidalsfjall – Vatnsheiði ***
Gengið verður frá Siglubergshálsi upp á hæsta punkt Fiskidalsfjalls 195m. Einnig verður gengið yfir Húsafjall sem er 172m á hæð.
Gangan tekur 2 - 3 klst.
9. júlí. Kirkjuhöfn – Sandhöfn *
Gengið verður um sögusvið skáldsagna eftir Jón Thorarensen sem heita Útnesjamenn og Marína. Skoðaðar verða tóftir íbúðarhúsa og kirkju sem fór í eyði vegna sandfoks. Prestar frá Keflavíkurkirkju verða með söguleg innlegg í göngunni.
Gangan tekur 2-3 klst.
23. júlí. Skálafell-Háleyjabunga
Gengið verður frá Hveravöllum þar sem Gunnuhver gýs, þaðan yfir
Skálafell að Háleyjabungu sem er 25m djúp og fallega mynduð dyngja. Jarðfræðingar frá Hitaveitu Suðurnesja/Geysi Green Energy verða með innlegg um jarðfræði.
Gangan tekur 3-4 klst.
6. ágúst. Þorbjörn **
Þorbjörn er stakt móbergsfell sem stendur norðan Grindavíkur. Fjallið er 243 m.y.s Ofan af fjallinu er gott útsýni yfir mikinn hluta Reykjaness fjallgarðsins.
Gangan tekur 2 - 3 klst.
13. ágúst. Garðskagi – Sandgerði *
Létt fjöruganga. Sagt verður frá viðburðarríkum atburðum sem tengjast sögu Íslendinga og gerðust á þessum slóðum, einnig verður sagt frá landnámsmönnum sem búsettir voru á þessu svæði.
Gangan tekur 2 - 3 klst.
Heilræði
* Drykkjarföng.
* Léttan bakpoka.
* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).
* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).
* Góðir gönguskór.
* Göngustafi.
* Góða skapið.
Munið
Upphafsstaður: SBK, Grófin 2-4.
Hvenær: miðvikudaga kl. 19:00.
Kostnaður: 500 kr.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á eftirfarandi vefsíðum:
